Gæðakjöt

Posted: 12 August, 2011 in Æfingarnar

Jebb, allur að braggast.  Var byrjaður að líkjast helv.. maraþonhlaupara en tók mig aldeilis á.  Hætti að borða nammi og drekka kók fyrir einhverjum vikum síðan og Bingo allt að lagast.  Hef þyngst aðeins en það sem betra er að ég er kraftmeiri finnst mér.  Núna fæ ég mér ávexti eða bara brauð ef mig langar í eitthvað, passa að recovery drykkurinn klikki ekki og fæ mér Creatine annan hvern dag.

Fór og tók á því áðan og var það mjög ánægjulegt.  Þyngdir eru upp plús endurtekningar og axlir ekki svo slæmar.  Prófaði að leggjast á bekk og taka 30 kg fasta stöng og skrattaðist með hana nokkrum sinnum.  Til að byrja með voru þvílík læti í öxlinni en þá hélt ég bara aðeins áfram og eftir smá stund hætti það næstum.  Þá þyngdi ég og fór svo á hallandi bekk (haus niður).  Þar var ég hinn hressasti og með þröngu gripi draslaði ég fínum þyngdum nokkuð oft upp.

Kannski þarf bara að taka aðeins á þessu og mýkja það upp.  Ég skil ekki afhverju viðbeinið ætti að detta svona ferlega illa inn eftir axlaraðgerð.

Fór í sjóinn í gær.  Gallasund var málið.  Mikið í sjónum og smá alda.  Var mátulega upprifinn yfir þessu öllu eftir skelfilegt sund í síðustu viku.  Lét mig samt hafa það.  Gekk svona og svona en um leið og ég fór að finna fyrir öxlinni fór sundið að skána hjá mér.  Velti mér betur til að ná að teygja mig betur og við það léttist mikið á takinu.  Ég göslaðist bara áfram og fannst eins gaman og það verður í gallanum .

Á morgun er það ein löng hjólaæfing sem endar í svona fínum Brick.  Karen ætlar að hjóla með og svo er hressandi hlaup á sunnudaginn.  Þetta er nú aldeilis ástæða til að taka eitt gott fagn.  Þannig er það nú.

Lengist í þessu

Posted: 8 August, 2011 in Æfingarnar

Eigum að vera dottinn í púlsgírinn aftur.  Hef fundið mér allavega afsakanir til að svindla aðeins á því og hef trúað þeim flestum.  Fór á laugardaginn fyrir viku í það sem átti að vera 2:20 sæmilega rólegt.  Ég fór 30 km á 2:11.  Tók verulega á trúðu mér og svo 4:30 hjól daginn eftir.  Ég var ansi þreyttur á mánudeginum en gaf ekkert eftir í baráttunni.  15 km morgunhlaup og 90 km hjól um kvöldið og það var farið að síga í hjá mér.  Tempo og svo slakir fimmtu og föstudagur.  Frábærir 27 km utanvega, malarvegir, brekkur og puð á laugardeginum.  Tók rosalega á en þrátt fyrir það tókst mér að halda púlsinum á sæmilegum stað.  Sunnudagur bauð upp á 5:30 hjól.  Ég var ansi þreyttur, svefnvana og ómögulegur og var að hugsa um að hvíla.  Ákvað að vera með þar sem þetta átti að vera löng róleg æfing.

Man, was I wrong!  Karen Axels mætti, tók okkur í kennslustund í Drafti og því hvernig á að hjóla á æfingum.   Fórum úr Nauthólsvíkinni á Þingvelli og þaðan á Laugarvatn.  Frábært veður, sumar og sól.  Hafði ekki hjólað á Laugarvatn fyrr og fannst ansi gaman.  Aðeins grófur vegurinn en samt alveg í góðu lagi.  Þrátt fyrir að við notumst ekki við draft í Ironman er það alveg frábært á svona æfingu til að halda uppi góðum hraða og þá er hægt að hvíla sig fyrir aftan hópinn þegar maður er orðinn vel steiktur á því.  Ég notaði það slatta 🙂

Að fara svona ferð er alveg einstakt.  Lítill hópur rugludalla sleppir sjónvarpi/djammi, hverju sem er til að vakna eldsnemma á sunnudagsmorgni og leggja af stað í svona puð leiðangur.  Svo þegar lagt er af stað út úr bænum breytist einhvernveginn fílingurinn.  Stoppað við vörðurnar og aðeins borðað, Þjónustumiðstöðinni og svo aftur á Laugarvatni.  Þar var það almennileg matarpása, pulsur og kók.  Brenndum í bæinn og beint í sjóinn til að kæla græjurnar.  Hrikalega gott og maður laus við alla verki og vesen daginn eftir svona átök ef maður nær að kæla almennilega.

Ég hef ekki hugmynd hvernig ég komst í gegnum þetta en það hafðist en mikið rosalega var ég orðinn súr í löppunum.  Tók mér frídag í dag en er alveg ótrúlega brattur og hefði alveg getað æft.  Fannst samt rétt að hvíla og veit að ég græði bara á því.  Morgundagurinn verður fjandi hressandi, hlaup eldsnemma og svo hjól í vinnuna.  Ætlum svo að hittast í Nauthólsvík seinnipartinn til að hjóla saman og svo er það heim aftur fyrir mig.  Annar 90 km dagur fyrir mig væntanlega.

Ég öfunda mannskapinn sem er að fara til Kölnar.  Það hefur reyndar fækkað talsvert í hópnum en þetta verður örugglega mjög flott hjá þeim.  Mér finnst nokkuð langt í þetta hjá okkur Florida förum en samt eru þetta bara 90 dagar.

Já já ég og sundmót.  daríadaa ég hlýt að vera alvarlega eitthvað.  Skráði mig og tók þátt í kílómetra sjósundi.  Frábært alveg.  Var með einhvern fíling að ég væri að skána eitthvað í sundinu en þá hvað?  Púff, lendi með einhverju liði sem er kallað skriðdýrin og var skilin eftir í fjörunni eins og gamalmenni á sólarströnd.  Sú litla færni sem mér hafði tekist að ná upp var skilin eftir í minningunni og ég buslaði þennan kílómetra á óratíma.  Glæsilegt.  Lét þetta ekki fara of mikið í taugarnar á mér merkilegt nokk.  Skrítið hvað sundið gekk illa, ég hef getað synt alveg ágætlega í sjónum en núna var ég ömurlega lélegur og kalt í bót.  Hélt að fíflin á bátnum í minni víkurinnar væru að sprella í mér og færðu bátinn því mér fannst hann bara ekkert nálgast.  Lenti í sjötta sæti af tíu, veit ekki hvort þeir sem voru hægari en ég komust í land og ég vil ekki vita það.

Hitti Kristínu Laufeyju (með eða án Joðs) og ákváðum við að búa til lið fyrir Ólympisku þríþrautina sem halda átti á laugardeginum 23. júlí.  Fengum Vigni Íslands til að hjóla með okkur.  Flott keppni þarna í Hveragerði, nokkurt rok og öskuský yfir öllu en það truflaði mig ekki neitt.  Verra var með hjólafólkið sem þurfti að slást við mikinn vind á leiðinni.  Ég hafði ákveðið að taka ekki þátt í þríþrautinni þar sem sundið er svo lélegt hjá mér og það vigtar svo mikið í þessari vegalengd.  Liðakeppnin var því kærkomin svona til að fá að vera með að einhverju leiti.

Okkur gekk öllum alveg ljómandi vel, Kristín Laufey með fyrstu sundmönnum, Vignir annar bestur á hjólinu og ég með besta hlaupatímann.  Frábær hlaupaleið fyrir ofan Hveragerði um skógarstíga og smá malbik.  Nokkuð erfið þó eins og sjá má af tímanum 41:47.  Fengum Pizzu í verðlaun sem er vissulega skárra en kók og prins en ég hefði nú viljað fá verðlaunapening frekar enda óvanur að fá svoleiðis fínerí nema sem þáttökudót.

Núna er seinni eða síðasti hluti Mark Allens prógrammsins farinn í gang.  Vikurnar lengjast og eru allar yfir 20 tíma.  Mér hefur gengið nokkuð vel að halda mig við plan þó svo að auðvitað syndi ég ekki tilætlaðan tíma enda mundi ég ekki endast lengi þá.  Veður hefur hamlað nokkuð Racer æfingum og því hef ég bara skellt mér á bak Ólafi og þeyst um á honum.  Fór í fimm tíma túr á sunnudaginn og svo þriggja tíma túr á þriðjudaginn var.  Algjörlega kreiiisí veður á þriðjudagskvöldið.  Fauk næstum af hjólinu og það oftar en einu sinni.  Hlaupin ganga ferlega fínt.  Hljóp á þriðjudagsmorgun og svo aftur á miðvikudagskvöld.  Miðvikudagshlaupið var tempó hlaup, ég gleymdi púlsmælinum og lét bara flakka.  Þrælgaman á fullu gasi.  Hefði verið skemmtilegur tími í 10 km hlaupi.

Á morgun á að vera langt hlaup og sund en það verður bara að ráðast hvernig það gengur þar sem ég ætla að vera hjá henni ömmu minni á þessum síðust metrum í hennar langa lífshlaupi.  Hún hefur sagt mér það svo oft hversu stolt hún er af þeim breytingum sem ég gerði á lífi mínu og ætli næsti Járnkarl verði ekki hennar 🙂  Það held ég.

Eftir HIM

Posted: 16 July, 2011 in Æfingarnar, Hið daglega amstur

Eftir alveg ágætt gengi í HIM síðustu helgi hef ég tekið því alveg ljómandi rólega.  Hef farið nokkrum sinnum í sjóinn og synt eitthvað.  Fór aðeins að lyfta og gekk alveg súper vel en reyndar fékk ég í öxlina um leið og ég reyndi bekk.  Tók samt mjög vel á því og hef verið með harðsperrur alla vikuna.

Fór aðra frábæra ferð með Ólafi núna upp að Hafravatni og þvældist þar aðeins um, sá einhvern vitleysing henda fullt af drasli úr bíl  og hringdi í lögguna.  Fór að Reykjum þaðan yfir í Skammadal, Mosfellsdal og heim.  Rigning og rok og ég alveg haug skítugur.  Skolaði aðeins framan úr mér í Hafravatni áður en ég hélt áfram.  30 kílómetra nokkuð erfiður rúntur og alveg ferlega skemmtilegur.

Fór með Corinnu í gallasund í gær, föstudag, í Bongó blíðu og háflóði.  Syntum yfir í víkina Kópavogsmegin og til baka ca. 1500 metra.  Nokkur alda á móti okkur þegar við syntum frá Kópavogi en það gerir þetta bara ennþá skemmtilegra.  Þó það sé gaman að synda í gallanum er það mikið meira álag á öxlina og átti ég nokkuð erfitt með svefn vegna þess.  Veit ekki hvort þetta er eitthvað sem þýðir að reyna að æfa úr sér en það er sjálfsagt að reyna það þar sem aðgerð er ekki á dagskrá fyrr en eftir Florida og ég fæ ekki aðra sprautu fyrr en rétt fyrir keppnina.

Fór norður á Laugabakka í gærkvöldi.  Góður fílingur í sæmó veðri þó það mætti nú blása aðeins minna.  Hljóp inn Miðfjörðinn í dag, kalt til að byrja með en svo spratt sólin úr leyni og þá hitnaði strax.  Nokkur strekkingur og þegar var farið að bæta vel í snéri ég við enda þá með vindinn í fangið og leiðin upp í mót.  Fór rúma 26 km án vatns eða orku og var bara orðinn þreyttur þegar ég kom til baka.  Var á Fastswitch skónum og ökklar og iljar orðin ansi aum enda að hlaupa á malarvegi og Fastswitch ekki beint til þess gerðir.  Kældi það versta og er bara fínn eftir.  Byrjaði reyndar hlaupatúrinn með hundinn Fróða með mér en hann gafst fljótlega upp og vildi heim.

Ætla snemma heim á morgun til að ná mér í gott, rólegt hjól í góða veðrinu sem á að vera.

Hvað fer fram á Gay kvöldi í dýragarði?  Þegar ég var í Berlin um daginn renndi ég mér í dýragarðinn.  Þá um kvöldið átti að vera sérlegt kynvillukvöld í garðinum og var allt að fyllast af svona líka ljómandi hommum.  Minna bara á lessunum enda hommarnir afskaplega áberandi í sínum hommaskap.  Það er ábyggilega nokkuð sérstakt að vera við svona “Show” en við bræður treystum okkur ekki til þess.  Kom þar helst til þýskukunnáttuleysi okkar bræðra.

Þar sem það hljómar lygilega að vera með sérstakt kynvillukvöld í dýragarði, hvernig passar það líka saman?, tók ég mynd af auglýsingunni til sönnunar.  Valdi á svo nokkrar skínandi hommamyndir.  Sæki ég þær við tækifæri og pósta hérna á Járnkarl.com.  Verður nafni síðunnar breytt í softí.com í framhaldi af því.

 

Góða nótt

Jahérna hér, ég synti bara eins og engill mína 1900 metra og var bara allt í lagi á eftir.  Var að vísu lengi að en hafði þetta og hafði meira að segja gaman af.  Ótrúleg heppni að detta svona í gírinn rétt fyrir keppni.  Er reyndar aumur núna en það jafnar sig sjálfsagt fljótt.  Var að sjálfsögðu á hægustu braut, hafði merkt mig á 46 mín, og var fremstur þar allan tímann en að vísu með Gumma Gísla í tánum á mér megnið af tímanum.  Hringaði einhverja og ég held meira að segja oftar en einu sinni.  Hahh ég var ekki lélegastur, var í 28. sæti af 39 keppendum og það er umtalsvert betra en ég bjóst við.  Ég hafði í alvöru búið mig undir að vera síðastur og hugsað um að ég gæti örugglega bjargað slatta á hjólinu og svo einhverju á hlaupum.

Skiptingin var fín hjá mér.  Pedalar á hjólinu og fór það bara fínt fram.  Hafði æf þetta nokkrum sinnum og fannst þetta lítið mál  Var nokkuð með á hreinu hvað ég ætlaði í en var með langerma peysu til öryggis.  Þegar til kom ákvað ég að sleppa henni, grifflur, sólgleraugu og hjálmur og ég farinn.  Fann fljótlega að eitthvað mikið var að mér í maganum og það ekki þessi venjulegi belgingur sem ég fæ alltaf eftir sund.  Ó nei, ég var að drepast!  Þurfti að ropa var flökurt og bara ferlegur alveg.  Var að reyna að drekka en það gerði ekkert fyrir mig.  Á endanum sendi ég frá mér tvær vænar slettur, sem betur fer var engin fyrir aftan mig, og þegar ég var búinn að losna við óbragðið úr munninum gat ég fengið mér smá Golf stykki.  Nokkur gola úr öllum áttum blés á okkur kappana, soldið (svolítið) sem við hjólarar erum vanir af Krýsuvíkurveginum.  Samt getur hinn ljúfi sunnan andvari tekið á taugarnar þegar maður er alltaf í mótvindi að manni finnst.  Hjólið kláraði ég sjöundi.

T2 skiptingin gekk verulega fínt.  Var soldið úti á túni þegar ég kom inn, minnti bara á fílingin í Köben, og hefði alveg verið vís með að panta bara pizzu með pepparóni, lauk og ananas hjá Steini þegar hann vísaði mér á skiptisvæðið.  Fann þó draslið mitt og var fljótur að koma mér af stað.  Þrátt fyrir að hafa tekið vel eftir á kynningarfundinum og skoðað ljómandi fínar teikningar 3SH af svæðinu var ég samt ekki með útrásina á hreinu.  Komst út og hljóp af stað.  Vá hvað tærnar voru kaldar.  Aumingja þeir sem voru ekki í sokkum og voru lengur en ég á hjólinu.  Fór, að mér fannst, hægt af stað.  Var heillengi að losna við stirðleikann af hjólinu og kuldanum.  Svo hlýnaði mér og þá fór að ganga betur.  Skemmtilegt að hafa hlaupaleiðina svona fjórar bunur.  Auðveldar manni að skipta hlaupinu niður og fyrir vikið meta standið.  Þegar maður er búinn með tvær eru bara þessi sem maður er á og svo ein stutt eftir og það gerir þetta allt svo lítið og létt.  Finnst reyndar vanta að maður viti stöðuna á hinum keppendunum svo maður viti við hverja maður er að keppa og taki þá jafnvel enn meira á.

Það var svo gaman að hlaupa inn á skiptisvæðið og heyra töff tónlist og Gísla í góðum gír.

Endaði í 3ja sæti í heldri manna flokknum (40+) sem er alveg frábært.  Gylfi frábær í fyrsta sætinu og Arnar fínn í öðru.  Fyrsta sinn sem ég kemst á verðlaunapall, fyrir utan auðvitað TT hjá Bjarti en þá kom það ekki ljós fyrr en síðar, og var það alveg meiriháttar tilfinning.  Kóngurinn sjálfur, Steinn, hengdi á mig Blingið.  Nú er það harkan sex.  Ég veit hvað ég vil fá út úr Florida þó svo að ég ætli að halda því fyrir mig.  Ég veit hvað ég vil og ég ætla mér að fá það.

Þrátt fyrir að ég hafi verið ósáttur við verðið á keppninni verð ég að segja að hún var hverrar krónu virði.  Þetta er mannskapur með þvílíka reynslu af keppnum, bæði sem keppendur og mótshaldarar að annað eins er vandfundið.  Allt var rúmlega fyrsta flokks og þó ég reyni dettur mér ekkert til að tuða yfir fyrir utan veðurspána hjá Aðalritaranum, hann eins og aðrir veðurspekúlantar klikkaði.  Jú eitt, klukkan var ekki nógu sjáanleg sem hefði ekki komið að sök ef ég hefði ekki klúðrað Garmin startinu hjá mér.  það gerist reyndar alltaf þannig að það fer nú að koma að pælingunni um að hreinlega láta hann bara vera.  Kannski nota hann sem hraðamæli á hjólinu.

Var það snjall fyrir löngu síðan og tryggði mér frí í dag.  Fínt að vera bara heima og jafna sig aðeins, sofa út og synda smotterí.  Læri og kálfar aumir en annars alveg la la bara.  Er með þetta skítabragð oní mér sem minnir óþægilega á daga drykkjunnar.  Eru þetta kolvetni í of miklu magni sem fóru svona illa í mig í gær?  Ég tók óheyrilega af kolvetnum, Glyco Maze, kvöldið áður og um morguninn.  Að öðru leyti var næringin ekki frábrugðin.  Naa hvurn fjandann eins og ég viti?  Næst verður það bara Cheerios og eitthvað gott í morgunmat.

 

Samkvæmt Allen átti síðasti föstudagur að vera sæmilegt hjól enda við að Taper-a á fullu fyrir hálfa kallinn sem verður 10. júlí í Hafnarfirði.  Ég var eitthvað ekki í stuði fyrir Reykjavíkurhring eða brun á Þingvelli þannig að ég gíraði Ólaf bara upp í langferð og smurði mér nesti.  Ætlaði að fara frá Reykjum yfir Skammadalinn og svo niður með Leirvogsá.  Var varla lagður af stað þegar sprakk og eyddi ég bjánalega löngum tíma í að skipta um slöngu og brjóta rándýr sólgleraugu.  Darn!

Nú ég brenndi af stað í annað skipti og fór líka svona frábæran túr.  Gott veður, soldil gola en hlýtt og kvöldsól fyrir allan peninginn.  Hentist út um allar trissur, torfærur og ár.  Dreif ekki yfir ánna og blotnaði í fæturna, dreif ekki upp brekkur og flaug næstum á hausinn og fannst svo hrikalega gaman að ég er þegar farinn að velta fyrir mér annari svona ferð.  Gaman að hafa hana nokkuð lengri og jafnvel einhvern með.  Sjáið leiðina, alveg frábært.  Smelli inn myndum sem ég tók þegar ég nenni að draga þær úr símanum en hér er linkur á leiðina:  http://connect.garmin.com/activity/96145484

Hef verið nokkuð duglegur að fara í sjóinn og synda slatta þar.  Ég veit ekki hvað veldur en allt í einu er eitthvað að gerast, mér finnst ég nái að renna og sundið er eitthvað svo áreynslulaust.  Öxlin er ekki sammála en þetta er alveg að koma held ég.  Corinna spurði meira að segja hver hefði verið að segja mér til.  Well mig dreymir fjandans sundið, ég horfi mikið á myndbönd af sundi og hugsa um hvernig ég ætla að gera þetta.  Svo þegar ég mæti á skýlunni þá reyni ég að hugsa um hvað ég var að horfa á og það hefur hjálpað til.  Ég get samt ekki sleppt því að minnast á að auðvitað hafa þau Vignir, Gylfi og Corinna verið ómetanleg í að koma mér í gang.

Nú er hálfi kallinn eftir einn dag og það sem ég hugsa um eru skiptingar ekki sund.  Það er auðvitað alveg út úr kú en ég næ ekkert að gera meira fyrir sundið á þessum tíma en skiptingarnar verða að vera í lagi.  Fór og æfði að fara úr og í hjólaskóna á ferð og var það lítið mál.  Bara að láta vaða.

Sneiðin fór til þeirra GÁP manna vegna leguhljóða og sögðust þeir hafa gert og gert.  Svo þegar ég var að æfa á þriðjudagskvöldið fór ég að heyra hljóðið aftur og fattaði þá að þeir GÁP menn hafa ekki prófað hjólið eftir.  Soldið svekk.  Er nú samt farinn að hallast að því að þetta sé hljóð í pedalanum þannig að ég flysja honum í sundur og maka á hann olíu.  Vonandi dugar það.

Fór í sjóinn við Garðskagavita í gærkvöldi.  Það var alveg meiriháttar, ný upplifun í sjósundi.  Þarna er hvítur sandur, tær sjór, flottur gróður og fiskur í sjónum.  Hún Gauja Garðsbúi sagði mér að það væri bara nokkuð algengt að synda með sel þarna.  Var virkilega gaman að heimsækja hana og Pálmar og eyða með þeim kvöldstund.

Fór með hann Fróða minn í það sem átti að vera rólegt þriðjudagsskokk í Tapering.  Ég var ekki með púlsmælinn á mér þannig að kannski hef ég gefið aðeins of mikið inn en mikið óskaplega var hundurinn þreyttur á eftir.  Kannski er svona erfitt fyrir hann að hlaupa í einhvern tíma í ól í stað þess að fá að gormast um sjálfur.  Á morgun eru 15 mínutur af öllum þremur greinum.  Þetta á að vera svo maður haldi spennunni.  Ég held að ég þurfi ekkert að gabba mig neitt til þess.   Spennan er mikil hjá mér, mig langar verulega að standa mig vel enda hef ég æft verulega vel.

Sunnudagur er svo HIM og verður vonandi ekki mikið rok á okkur á Krýsuvíkurveginum.  Ég verð góður sama hvernig veðrið verður.  Ef það verður skítaveður er skítaveður hjá öllum en mér finnst oft bara gaman að leika mér í skítaveðri.  Ef það verður sól og brakandi blíða verð ég úber hress því í þannig veðri finnst mér skemmtilegast að hlaupa o ghjóla í .

Gott í kvöld

Hólka Pólka

Posted: 26 June, 2011 in Uncategorized

Einhver losarabragur er á hópnum þessa dagana.  Formaðurinn fjarri góðu gamni með auma hásin og menn að keppa um allar trissur.  Ég reyndar á heilmiklu skralli í Berlin þessa vikuna þar sem ég sá Slipknot í pínulitlum sal, eitthvað sem maður hefði aldrei þorað að vonast til að sjá.  Mikil nálægð, mikill hávaði og mikið rokk.  Tók eina góða hlaupaæfingu á flugvellinum sem var hluti loftbrúarinnar til Berlin við upphaf kalda stríðsins.  Berlinarborg er að breyta honum í almenningsgarð þar sem til stendur að halda brautunum fyrir hjólara, hlaupara og skate-ara.  Rennislétt malbik og það mikið af því.  Hringurinn um flugvöllinn tæpir 7 km og fór ég tvo.

En að æfingum.  Fór í fyrsta gallasundið á föstudaginn eftir lyftingaæfingu.  Hafði verið á hefðbundnu róli, léttur og fínn, þegar ég prófaði bekkinn.  Byrjaði létt og þyngdi svo aðeins.  Fer síðan einn og hálfan í sjónum og var svo gjörsamlega ónýtur í öxlinni á eftir.  Fór svo í gær og dag en þá bara styttra í einu en fór þá bara aftur.  Synti aðeins með Ermarsundsfólkinu og náði fínum tíma í sjónum í bæði skiptin sem er bara ágætt eftir 17 km hlaup.

Sunnudagur spáði góðu hjólaveðri en svo virðast spár hafa breyst eða eitthvað.  Fórum fjórir, ég, Eddi, Pétur og Siggi, á Þingvelli í talsverðum strekkingi í fangið.  Ég í góðum gír og ákváðum við að skipta liði við Gljúfrastein, ég gaf aðeins í og fór á undan.  Var ekki með iPodinn og rúllaði Holka polka með Sniglabandinu í hausnum á mér alla leiðina austur.  Vonaðist til að heyra eitthvað í sjoppunni sem ég gæti gripið en svo heppinn var ég ekki og rúllaði því lagið aftur í bæinn.  Verst að ég kann ekki allan textann þannig að þetta var að verða þreytt.

Var rétt rúma tvo tíma austur en svo eftir að fá kaffi, flatara og pönnsu rauk ég í bæinn á rétt rúmum klukkutíma.  Hrikalega gaman þó að notalegt hefði verið að hafa skóhlífarnar.

Sneiðin fór í tékk í vikunni og er ég laus við leguhljóðið sem var að trufla mig.  Það er gott.

Græðgi virðist hafa gripið Hafnfirðingana því þáttökugjaldið í hálfa kallinum hefur hækkað um 50% milli ára.  Misjafnt er eftir því við hvern er talað hver ástæðan er en augljóst er að mikil óheillaþróun er að eiga sér stað í keppnisgjöldum.  Var að hugsa um Laugaveginn svona þar sem öxlin er varla sundhæf en þá kostar 51.000 að fara hann!  Þetta er alveg út í bláinn.  Tökum 113 á þetta.

Hérna sést hvað við v0rum á frábærum stað á tónleikunum.  DJ-inn kom þarna upp á svalirnar til okkar og lét sig síðan gossa aftur á bak niðrí mannhafið.  Algjörlega geggjað.

Amen

 

Skemmtilegir dagar

Posted: 13 June, 2011 in Æfingarnar, Keppnir

Hef verið duglegur að fara í Nauthólsvík undanfarið.  Oft með Corinnu en líka einn.  Hef reynt að bæta við tímann í hvert skipti og gengið það alveg ágætlega.  Finnst þetta alltaf jafn gaman og finn ennþá fyrir spennu þegar ég er á leiðinni og eins líka þegar ég sé eitthvað líf í sjónum.  Svo er nú líka nokkuð spennandi að sjá ekki til botns, öfug lofthræðsla?

Æfingar hafa gengið alveg bærilega.  Fór loksins til Örnólfs sem smellti í mig einni huggulegri sprautu.  Nokkuð óþægilegt en allt í lagi.  Þetta var á miðvukudegi og á sunnudeginum tók ég þátt í Bláa Lóns þrautinni.  Alveg brill, öxlin frábær og núna á mánudagskvöldi er ég eins og nýr.

Bláa Lónið gekk svona líka ágætlega.  Ætlaði að vera með Vigni og Bjarts mönnum en klúðraði því að troða mér fram í byrjun og byrjaði afleitlega.  Horfði á eftir þeim meðan ég var stökk í hægri umferð og góðri hrúgu af fólki sem datt.  Ég skrattaðist þetta því einn vankunnugur á alla taktík en þeim mun ákveðnari í að standa mig vel.  Þvílík keppni, ótrúlega fjölbreytt landslag og leiðin algjörlega frábær.  Geggjað að láta sig vaða niður brekkurnar upp á von og óvon að maður kæmist heill á húfi út úr þessu.

Kom í mark á 2:12:58 sem er hvorki betra né verra en ég gerði mér vonir um þar sem ég hafði ekki hugmynd um við hverju væri að búast.  Þegar ég kom í mark var ég ekki hjólaþreyttur heldur meira eitthvað annað.  Sætið var of lágt hjá mér og ég bara eitthvað ekki vanur þessu.  Núna er ég að drepast í klofinu eftir að vera með sætið svona lágt.  Hvað um það.  Tókum Brick á þetta í BL og hlupum út í rúmt korter og svo til baka.  Upp út og mótvindur til baka.  Dæmigert.  Smá sull í Lóninu og svo hjólað í bæinn.  Að sjálfsögðu var áttin okkur ekki hagstæð þannig að þetta tók í.

Fórum fjögur saman í bæinn, ég, Ásdís, Vignir og Oddur.  Rétt náðum starfsmönnum Áslandslaugar og fengum dótið okkar afhent.  Hávar og Maggi voru ekki svona heppnir en þeir komu nokkrum mínutum eftir að við Vignir lukum einum aukahring um hverfið.  Maggi átti stórleik dagsins þar sem hann var með bíllyklana sína í töskunni.  Eftir á að hyggja verð ég smá pirraður yfir þessari eilífu minnimáttarkennd.  Afhverju í ósköpunum drullaðist ég ekki til að berjast um stöðu strax í startinu.  Að gefa eftir stöðu er alveg fáránlegt í keppni og ég verð að fara að venja mig af þessum ósóma.

Er í fríi frá vinnu tvo daga af næstu þremur og verður aldeilis tekið á því þann tíma.

Næst er það svo Slipknot í Berlin, það verður geggjað.

 

Frídagur, hvusslags eretta

Posted: 2 June, 2011 in Uncategorized

Jibbí, frí á morgun og engin skipulögð morgunæfing.  Ég ætla að fá mér ís, nammi, horfa á sjónvarpið, spila WoW, lesa og taka til.

Eða hvað?

Klukkan er korter yfir tólf og ég er farinn að hugsa um hvað verður gott að fara inn.  Vakna svo sprækur í fyrramálið og fara soldið út að hjóla.  Hjóla bara í tvo tíma og svo í sjóinn.  Ætti ég að fara á Ólafi?  Fínt ef maður ætlar með fullt af drasli með sér.  Ekkert gaman að hjóla með bakpoka á Sneiðinni.  Sund eftir kvöldmat.

Sprettæfing í dag.  Laugardalsvöllur, ég og Vignir.  Mínus Vignir.  Vignir fær fjarvistir í kladdann.  Hitti spræka ÍR-inga og aðra.  Mót á vellinum þannig að við vorum svona Semi vinsæl þarna en það slapp.  Fullt af flottu liði og ekki að gormast um.  Finnst ennþá rosa spennandi að vera æfa innan um þetta flotta lið.

Hefði alveg mátt við betri teygjum eftir þetta en þurfti að drífa mig í útskrift hjá honum Gunna mínum.  Hann var að klára grunnskólann í dag, ég er afar stoltur af honum.

Amen

Þau falla

Posted: 29 May, 2011 in Uncategorized

Persónulegu metin.  Um daginn var það hálft maraþon og núna hin mjög svo skemmtilega fertugasta mínúta sem fékk að fjúka í 10km hlaupi.  Afmælishlaup Vals var málið.  Fín hlaupaleið með lögguna að stoppa umferð, ljómandi veður með smá golu og sólarglenna.  Hljóp með Einari Júl og Gunnari hundraðkalli þar sem Einar ætlaði að gera meira en hann gæti.  Mér fannst það hljóma spennandi og fór með. 

Var sjúskaður í lærinu eftir að droppa sæmilegu handlóði á mig en það var ágætt að hafa eitthvað til að hugsa um.  Var ekki með tónlist og held ég að það sé bara hið besta mál til að ruglast ekki í hraðanum.  Mér er svo hætt við að láta tónlistina stjórna hraðanum og það getur komið sér illa.

Garmin hrúgan mín týndi hlaupinu þannig að ég veit ekki hvernig skiptingin var en mig grunar að ég hafi verið að bæta tímann minn á 5km líka.

Ætlaði síðan að hjóla Bláalóns leiðina í dag með Járnliðinu en var svo illa stemmndur í morgun að ég “meikaði” bara ekki upp og út.  Svaf þess í stað lengi enda kannski ekki vanþörf á.  Fór svo með Corinnu langan Reykjavíkurrúnt með útúrdúr að Gljúfrasteini.  Ansi mikið rok og alls ekki hlýtt.  Hittum Gylfa í Víðidalnum þar sem hann var á heimleið eftir fimleikakennslu, hann kann margt hann Gylfi.

Þessi vika er búin að vera léleg í æfingum sem og öðru.  Hef verið á vaktinni og einnig hafa áhyggjur af öðrum málum truflað mig nokkuð.  Hefur þetta bitnað verulega á mataræði og svefni sem svo skilar sér beint í lélegar æfingar og ástand almennt.  Vaktin er búin næstu 6 vikurnar þannig að þá er það af.  Annað er óleyst því miður.

Amen