Hef verið alveg þokkalega skynsamur í æfingunum. Mæti hjá Vadím og finnst það frábært. Hlakka til æfinganna og líður vel með mig í sundinu. Öxlin vill vera með í gleðinni og lætur vita temmilega af sér. Vonandi versnar það ekki.
Elli bauð mér að koma til sín í mjólkursýrupróf sem ég að sjálfsögðu þáði. Gaman að því hvað þetta var eitthvað pro og hann alltaf flottur í svona dæmi. Kom alveg ljómandi út úr því en hefði mátt vera aðeins hvíldari. Það verður þá bara enn skemmtilegra í næsta testi.
Náði mér í einhverja smá kvefpest sem truflaði mig aðeins enda leiðinlegt að hlaupa með öndunarfærin full af drullu. Sleppti einum degi en svo var einhver ókyrrð i mér með að vera ekki að æfa þannig að ég lét mig hafa það. Langa æfingin síðasta laugardag var ekkert nema ömurleg og svo til að bæta í þá reyndi ég að bæta mér það upp í gær með því að taka tempo. Hvusslags rugl er þetta eiginlega? Ég er með þetta fína plan og við fyrsta skrik þá fer ég og hegða mér eins og fífl.
Æfingin í kvöld var hins vegar ekkert rugl. 20×400 metrar á einhverju sem Þorlákur kalla 5km pace og maraþon pace-i. Engin pása á milli og þegar 4:10 er orðin slökun þá er nú eitthvað að gerast. Hún söng dirrindí maður minn. Hef hlakkað til þessarar æfingar frá því ég sá hana á planinu og hún var sko hverrar krónu virði. Erfitt en hrikalega gaman. Í restina vissi ég ekki hvort ég var svona þreyttur, svangur eða bara kominn í aðra vídd. Sennilega hefur stíllinn ekki verið mikið á að sjá en hei það er mitt mál. Næst verð ég dásamlegur á að horfa.
Næsta gleðihlaup verður svo 34 km þar sem ég byrja á 10% afslætti í 19 km en fer svo á MP síðustu 15 km. Alvöru test það. Þegar ég verð búinn að merkja við það er ég pottþéttur á að klára mig af þessu Sub3 stuði mínu. Halló ný markmið kannski? Tja framundan eru tveir Járnkarlar, annar í Roth og hinn Florida. Challenge í Roth en IM í Florida. Enginn Laugavegur í ár hjá mér, ónei. 2013 verður svo undirlagt af Kona undirbúningi er það ekki? Sjáum til en það er allavega planið.