Fékk svona ljómandi prógram frá Þorláki þjálfara. Einföld regla, stick to it! Hann segir mér það sem ég veit að það er gaman að hlaupa hratt, ég veit líka að hvíld skiptir jafn miklu máli og æfingin sjálf. Ég fer bara ekki nógu oft eftir því. Maður þarf að geta tekið næstu æfingu eins og til er ætlast og þá er vissara að klára sig ekki á æfingunni á undan. Þetta veit ég en fer bara ekki alltaf eftir því. Þessi vika hefur verið ansi stíf. Langar “greddu” æfingar hafa tekið í og svo mjólkusýrumæling hjá Ella Níelsar í gær. Djöfulls puð og svo hámarkstest í restina. Gæða hjartaáfall þar. Þetta olli því að fyrsta langa æfingin mín varð nokkuð erfið. 30 km á 20% afslætti frá MP ætti ekki að vera erfitt en gærdagurinn sat í mér. Kláraði samt vel og hélt meðal Pace 12,5.
Ég kom rosa vel út úr prófinu, gaman en ég held að ég hafi ekki verið neitt undrandi á því. Hef lagt vel inn og gert margt vel að mér finnst. Hef smá áhyggjur af skrokknum en vona að ég geti látið nudda þetta úr mér og æfingarnar frá Valla sjái svo um framhaldið. Hef tröllatrú á honum enda hefur það sýnt sig að hann veit hvað hann er að tala um.
Er mikið að spá hvort ég ætli að gera mér einhverja ferð úr þessu Miami brölti mínu. Finnst þetta allt frekar dýrt og er helst á því að fara bara í fimm daga. Dagana fyrir hlaup verð ég bara á íslenskum tíma, slaka svo smá á eftir hlaupið og svo bara heim. Súper plan held ég.