Jæja, næstum fimm vikur liðnar frá síðasta Tune-up. Tvær tiltölulega rólegar í viðbót og síðan allt í botn.
Sólveigu sjúkraþjálfara líst vel á gang mála og segir að ég sé ekki í hættu á að öxlin frjósi nema ég taki upp á því að haga mér eins og fáviti. Fat chance on that. Hjólið komið og eyði ég góðum tíma í að tala fallega við það og strjúka því. Það purrar á meðan svona til að segja mér að það sé mitt.
Smellti mér á brettið í fyrsta sinn í yfir mánuð á þriðjudaginn var. Hitaði sæmilega upp en hresstist síðan allur og tók 5 km. á 19:32 sem er PB hjá mér. Miðvikudagur hlaup samkvæmt plani. 142 púls í 50 mín. Gekk vel og svitnaði ég varla. Síðasta Powerade vetrains á fimmtudaginn. Lítið borðað um daginn og því ansi orkulaus í hlaupinu. Tuðaðist þetta á 45:30 en hefði átt að gera betur.
Tók þungar lappir á föstudaginn og síðan rólegt laugardagshlaup. Fyrri 45 mín. rólegar en bætti síðan nokkuð í. Veðrið alveg frábært og ég alveg guðdómlegur á litinn eftir þennan frábæra dag.
Til lukku með nýja Bloggið á járnkarl.com
Ljómandi fínt línubil!