Archive for the ‘Æfingarnar’ Category

Það er hundfúlt að æfa svona lítið, eiginlega alveg drepleiðinlegt.  Florida undirbúningurinn hélt manni rækilega við efnið og Allen prógrammið og Vignir gáfu engin grið.  Núna er Allen og hans hópur bara í einhverju tapering rúnki meðan ég er að reyna að koma mér í gang aftur.  Það vantar eitthvað til að koma mér í gang.  Miami er skammt undan en samt er ég alveg pollrólegur.  Er aðeins búinn að hlaupa þessa vikuna en ekki gert það af neinu viti.  Hef verið á brettinu með púlsinn alveg í rassgati.  Hefur samt gengið vel að halda hraða og í gær í Laugum náði ég að halda mjög góðu Tempói og bæta hressilega í síðari helminginn.

Valdi bróðir er kominn á fullt í Mú tæ kick box og var að senda mér linka á æfingabúðir, já það gekk svo vel hjá mér í þeim síðustu, og ég fór allur á flug.  Væri ekki bara alveg frábært að fara í mánuð til Tælands og læra Mui Thai?  Bara gaman hrísgrjón í öll mál nema þegar það eru rækjur.

 

 

Sei sei og já já.  Vinstra herðablaðið brotið.  Röntgen læknir segir að höggið sem þarf til að brjóta herðablað sé svo mikið að yfirleitt brotni eitthvað með.  Fyrir utan tognanir og eymsli er ég heill að öðru leiti s.s. sinar og dót í góðum gír.  Spurning hvernig öxlin kemur út úr þessu.

Axlarlæknirinn Örnólfur segir mér að slaufa Florida en bannar mér ekki að fara!  Segir að sundið verði mér erfitt (eins og ég hafi ekki vitað það ha ha) vegna verkja.  Ég ætla að sjá til með hvað ég geri og ekki taka neina ákvörðun strax.

Nú fyrir utan þetta “frávik” á æfingaáætluninni var Mallorcaferðin ótrúlega frábær.  Hjóluðum, hlupum og syntum eins og englar innan um alla fallegu englendingana.  Síðasta daginn minn úti reyndi ég að taka sundlaugina á þetta enda frekar ógangfær en gafst fljótlega upp og fór á röltið.

Eitthvað smotterí tók ég af myndum sem ég smelli á myndasíðuna.

Fallinn

Posted: 25 September, 2011 in Æfingarnar

Laugardagur:  Langt hjól á plani.  Fórum í seinna fallinu í það sem átti að vera flatt 150 – 180.  Vorum varla búnir með 30 þegar sprakk hjá Oddi.  12 mínútur þar og aftur af stað.  Eftir stutta stund byrjaði að grána og fljótlega að rigna.  Vorum rétt að detta í lítið þorp og fórum undir vegg til að bíða þetta af okkur.  Sumarklæðnaður á okkur, stuttbuxur og stuttbolur.  Innan stutts tíma var komin lemjandi rigning og drifum við okkur inn í þorpið og í bakarí sem við fundum þar.  Þá opnuðust himnarnir og það gerði þvílíka hellidembu.  Venjulega varir svona stutt en það bara hætti ekki að rigna.  Veðurspáin breytt og ekki átti að stytta upp fyrr en um kvöldið, hvaða rugl er þetta?  Fundum okkur strætóstöð og tókum strætó til Alcudia og hjóluðum þaðan heim.  Vorum alveg gegndrepa og kaldir.  Nóg hjól í dag enda ekki þorandi að hjóla á blautum götunum.

Ákváðum að taka bara sunnudagshlaupið í staðinn.  Inn til Pollenca og þar upp einhverjar tröppur þar sem þeir hörðustu áttu að gera tvisvar.  Sex kílómetrar í upphitun og ég kominn með skjálfta af orkuleysi.  Fékk mér orkudrykk og gel og hresstist allur.  Fórum í tröppurnar og Boy oh boy voru þær töff.  350 metrar og 50 metrar upp í loft af misháum, mislöngum og ójöfnum tröppum.  Ég hélt ég væri dauður þegar ég kom upp.  Jafnaði mig og niður aftur sem var bara ansi snúið.  Aftur upp og núna á betri tíma og síðan bara enn eina ferð og hún aftur hraðari.  Hressleikinn alveg í botni.

Þegar við snerum svo heim ákvað ég að taka smá tempo á þetta og setti á mig iPodinn.  Ministry að gera góða hluti og ég smellti grjóti á gjöfina.  Ferskur og í góðu skapi fór ég þetta á 3:30 til 3:40.

Flott að borða um kvöldið eins og öll önnur kvöld.

Sunnudagur:  Já já langur hjóladagur 180 km.  Ég náði að hjóla 22 km og var eitthvað aðeins á eftir í eigin heimi, aumur í klofinu og ble ble þegar ég ákvað að ná strákunum.  Gaf vel í en í einu úrvals hringtorginu rann hjólið undan mér.  Ég var á tæplega 50 km hraða og skall ansi harkalega í götuna.  Fékk talsvert högg á vinstri öxlina og rúllaði eitthvað og rann svo smá svona líka en slapp við að lenda á kantsteininum.  Strákarnir reistu mig við og biðu meðan ég kveinkaði mér og aumingjaðist.  Vignir stoppaði ljómandi dömu sem skutlaðist með mig og Trausta í bæinn, Sa Pablo, á slysó.  Vignir og Oddur héldu áfram enda nóg eftir af deginum.  Gaman að koma á slysó í ókunnu landi, fékk að fara fram fyrir og allt.  Tvær huggulegar hjúkkur og Dr. Igor, jebb, tóku á móti mér.  Trausti sagði þeim að við værum í sameiginlegu kerfi og ættum ekki að borga nema mininum.  Hjúkkit.  Mér var strokið og ég sótthreinsaður og plástraður voða fínt.

Igor skrifaði beiðni fyrir röntgen en við ákváðum (eða Trausti) að það mætti bíða aðeins.  Fórum bara upp á hótel, skiptum um föt og drifum okkur út að borða.  Kínverskur í dag og svo kaffi og eplakaka í eftirrétt.  Alveg ljómandi en ég er hræddur um að ég æfi ekki mikið hérna það sem eftir er af ferðinni.  Það verður að hafa það og er þó skárra en ef ég hef brotnað.  Ekki útséð með það þó en það verður bara að koma í ljós.

Alveg er það merkilegt að ég hef oft hugsað það að detta bæði á mótorhjólinu og sneiðinni hvernig ég mundi bregðast við þegar það væri að gerast.  Aha, maður bregst ekki rassgat við öðruvísi en að lenda í götunni!  Það er ekkert flóknara en það.

Mallorca, frábær byrjun.

Posted: 23 September, 2011 in Æfingarnar

 

Mallorca

 

Vorum seinir á staðinn og komum okkur fyrir.  Fín aðstaða alveg og bara ánægja með hana.

Vöknuðum á fínum tíma og drifum okkur í hjólabúðina.  Fyrir lá stuttur, 70km, túr og nett skokk.  Auðvitað var eitthvað  vesen með hjólið mitt og svo tók þetta bara allt talsverðan tíma.  Fórum ekki fyrr en um hádegi af stað.

Boy, hvað þetta var gaman.  Hraðinn bara urrandi fínn á tæplega 40, sól og blíða, hjólin fín og allt alveg æði.  Orka og vatn með og allir í góðum málum.  Þegar til kom að fara að hlaupa var leggurinn orðinn stífur.  Ætlaði að reyna að hlaupa það úr mér en gekk illa.  Hægði verulega á mér og þá svona fór það að ganga betur.  Helvíti fúlt ef þetta verður eitthvað til að trufla mig.

Miðvikudagsfjör:  Planið sagði 150 til 180 km eða sex tímar af hjóli.  Þræddum hvern smábæinn á fætur öðrum og fínni ferð og síðan voru það bara fjöllin.  ROSALEGAR brekkur.  Klifruðum þetta eins og stiga í steikjandi hita og logni.  Niður var ekki síður erfitt.  Svakalegar brekkur, en ekki hvað, og síðan U beygjur við endann.  Tók verulega á hendurnar að djöflast þetta.  Lengsta klifrið 14 km og var að því manni fannst endalaus.  Fórum í gegnum tvenn göng sem eru að sjálfsögðu ekki lýst og hef ég aldrei verið jafn lífhræddur og þarna.  Aftastur í svarta myrkri og spánskir bílstjórar væntanlegir.  Sem betur fer kom enginnn bíll því þá hefði ég sennilegast dáið úr hræðslu áður en hann hefði náð að keyra á mig.  Leiðin til baka var ein sú svakalegasta.  Endalaus brekka niðrí mót.  Hraðinn á manni alveg hrikalegur og maður vissi aldrei hvað var handan næstu beygju, U beygja, malbikunarframkvæmdir eða beint af augum.  Algjört Kamakazee á mér.

Fimmtudagur:  Byrjuðum á sjósundi.  Verri öxlin slæm og mér gekk illa.  Harkaði 3,3 af mér en var mjög óhress.  Lét það sem ekki sitja neitt í mér enda hlaupaæfing fram undan.  Fórum og lögðum okkur í smá stund og fórum svo út rúmlega fimm.  Mér fannst ég bara þreyttur og kraftlaus eitthvað og leist ekkert á þetta.  Skokkuðum út á veg sem liggur fyrir ofan bæinn og bjuggum okkur til miðju þar sem drykkir og dót var geymt.  Síðan bara gusast í 10 x 1 mílu interval.  Átti að vera half Ironman og Ironman pace en ég missti mig að sjálfsögðu og var með þetta meira svona bara nálægt flat out.  Skemmtileg tónlist í iPodinum og frábærar aðstæður gerðu það að verkum að ómögulegt var að taka róleg inn á milli.  Stoppuðum alltaf og létum hjartsláttinn fara niðrí 120 áður en við fórum í næsta ger.  Ég stoppaði reyndar stundum aðeins lengur þar sem hann fór niður um leið og ég stoppaði.  Borðuðum á amerískum stað alveg ágætis mat en nokkuð dýran.

Höfum verið ansi heppnir með matinn hérna þó við séum orðnir þreyttir á morgunmatnum.  Held að flesta langi bara í eitthvað venjulegt.

Föstudagur:  Bara sund.  Sváfum út, röltum í hjólabúð og við Trausti fórum smá rölt í bæinn.  Fundum fínan Bónus og keyptum allavega gúmmulaði.  Fórum svo í sjóinn um fjögur.  Mesta sólin farin og þá hægt að synda eitthvað án þess að skað brenna.  Ég varð ansi rauður í framan og á hálsinum í sundinu í gær.  Hef samt verið duglegur að nota vörn en hingað til aðeins notað númer 15.  Keypti mér númer 30 í dag og er alveg bjútí eftir daginn.  Synti vel og auðvitað er það smá áhyggjuefni hvað ég er upp og niður í þessu en það er auðvitað æfingaleysi og öxlinni um að kenna.  Held að æfingarnar hjá Vadím fækki þessum slæmu köflum hjá mér.  Fórum svo á indverskan stað í kvöld og fengum frábæran mat, ís hjá Ben og Jerry, eða eitthvað svoleiðis, í eftirmat.  Morgundagurinn verður erfiður og hver dagur eftir það erfiðari.

Mallorca á eftir

Posted: 18 September, 2011 in Æfingarnar

ó já, Mallorca í æfingaferð.  Spáin er snilld og félagsskapurinn meiri snilld.  Veðrið í dag lætur mann ekki sjá eftir þessari ákvörðun.  Fór með Magga Ragnars og Hávari sæmilegan rúnt á fjallahjólum.  Hólmsheiðin og yfir í Heiðmörk.  Rosa fjör á stígunum þar en ansi hvasst og mikill raki í loftinu.  Var orðinn skítkaldur þegar við ákváðum að láta Heiðmörkina duga í dag.  Ætlaði að fara á þrekhjól eða lyfta eða bara eitthvað en endaði bara í menthol gufu með Jóni Ágústi.  Aldeilis ljómandi og afar jákvætt að safna sér óþreytu á þennan hátt.  Vonandi kemst ég aðeins í lóð þarna úti svona ef það skildi detta á með dauðan tíma.

Nettur spenningur

Posted: 17 September, 2011 in Æfingarnar

Hvursu ruglað er það að Taper-a fyrir æfingar?  Það er nú engu að síður það sem ég ætla að gera á morgun.  Ætla að klippa langa hjólaæfingu niður og fara bara hressandi túr á fjallahjólinu með Magga Ragnars og Hávari.  Það getur nú tekið vel á en er samt ekki ígildi langrar þríþrautarhjólsæfingar.  Ég á nú eftir að taka svo verulega af þeim á næstu dögum að það er ekki áhyggjuefni.

Langa hlaupaæfingin í dag átti að vera 2:10 en ég var svo lánsamur að hlaupa með Begga Árbæing og það breyttist fljótlega úr löngu hlaupi í mjög hressandi tempó.  Fórum við Heiðmörkina á pace 4 í dásamlegu veðri og dúndur fíling.  Ég með 3 gel en vantaði drykk.  Slapp alveg en hefði verið skemmtilegra að hafa smá sopa með.

Nú svo er það bara Mallorca á mánudaginn.  Damn ég er bara eins og krakki ég hlakka svo til.  Að æða um eins og óður á reiðhjóli í blússandi góðviðri, lítið klæddur og fara svo bara heim að borða og slaka á.  Geggjað!  Það er algjört bjútí að geta leyft sér þetta og gera það.

Valdi bróðir var að keppa á Mr. Olympia í Las Vegas.  Strákurinn náði sér í annað sæti með 840kg tótal 330, 210, 300.  Hann hefði átt að gera betur í bekknum og mér finnst líka í deddinu þó að hann sé ekki sammála mér þar.  Hérna er fín beygja sem ég hef ekki hugmynd um hvað er þung en fín er hún:  http://www.facebook.com/#!/photo.php?v=10150312038018592

Spáin fyrir Mallorca er eitthvað á þessa leið:  Sól og 25 til 28 stiga hiti endurtakið eins oft þið viljið.  Maður á eftir að verða eins og Kofi Annan á litinn eftir þetta.  Það er töff.

Nú held ég að málið sé að lesa aðeins meira í snilldarbókinni um dávaldinn og fara svo að sofa.

 

 

Þokkaleg ástundun undanfarnar vikur er aðeins farin að segja til sín og þreyta farin að síga inn.  Þegar ég hef orðið hennar var hef ég slegið af eða jafnvel splæst mér í frídag.  Þeir hafa þó ekki orðið margir undanfarið.  Prófaði að fara í djúpnudd til hennar Ólafar Sæmundsdóttur og þrátt fyrir að vera skratti vont þá lét ég mig nú hafa það og fór aftur vikuna eftir.  Kálfar sem höfðu verið eins og grjót eru bara orðnir mjúkir og fínir en ég var nú nokkurn tíma að jafna mig á þessum djöfulgang.

Fór að fá bólgurnar fínu í vinstri legginn aftur og kíkti til Valgeirs hjá Atlas.  Hann stakk og stakk og ég var bara svona ljómandi fínn á eftir.  Algjör galdur svona nálastungur.  Er hættur í sjúkraþjálfun í bili, ætla bara að lyfta vel, teygja, fara í gufu og nudd og halda mér góðum þannig.  Axlirnar hafa verið svona og svona en samt ekkert sem ég get notað sem afsökun.  Það var einmitt þess vegna sem ég ákvað að gera eitthvað í sundmálum.

Sá auglýsingu frá sjósundfélaginu þar sem auglýst var sundnámskeið með Vadím Forafonov.  Þar sá ég email addressuna hans og smellti á hann línu þar sem ég bað hann um einkaþjálfun.  Hann hringdi í mig stuttu seinna og ákváðum við hitting daginn eftir.

Fyrsta æfingin var flott og allar æfingar síðan verið frábærar.  Mér finnst ég finna mun á mér á hverri æfingu og það sem meira er ég hlakka til hverrar æfingar.  Það er aldeilis nýtt.  Núna finnst mér gaman að gera drill og ef ég klúðra einhverju, sem gerist ekki sjaldan, stoppar Vadím mig og segir mér hvað ég er að gera vitlaust.  Ég veit að ég verð ekki góður sundmaður á þessum stutta tíma fram að keppni en það má eitthvað mikið gerast ef ég næ ekki að bæta sundtímann minn verulega frá Köben.

Á mánudaginn förum við fjórir, ég, Vignir, Trausti og Oddur til Mallorka í æfingaferð.  Það verður ekkert nema frábært að æða um eyjuna á flottum Racer-um í 25 stiga hita og sól.  Karen bjó til prógram fyrir okkur með rosalegum hjólatúrum en líka slatta af sundi.  Hlaupið er í minna lagi enda ekki gáfulegt að taka langar hlaupaæfingar þar sem maður er svo lengi að jafna sig eftir þær.  Við fáum líka tækifæri til að rækta hauginn í okkur því síðasti dagurinn er að miklum hluta ætlaður til sólbaðs.

Ég hef verið tregur til að kalla þáttökuna í Ironman Florida verkefni, frekar áskorun þar sem ég er að mestu að keppa við sjálfan mig.  Mér hefur aldrei þótt ég eyða of miklum tíma í æfingar og fæ sárasjaldan það á tilfinninguna að ég þurfi að fara á æfingu.  Það er miklu frekar að ég hlakki til að fara á æfingarnar.

Fokk ég er farinn að sofa, æfing í fyrramálið!

Langt hjól og 3N

Posted: 27 August, 2011 in Æfingarnar

Langa hjólið var flutt yfir á daginn í dag, laugardag, þar sem spáin fyrir morgundaginn er frekar fúl til hjólreiða.  Fórum úr víkinni góðu og stefndum á Suðurnesin.  Hægur andvari aftan á hlið og varla hægt að óska þess betra.  Haustfílingur á hitastiginu og því jakki, síðbuxur og hanskar brúkaðir.  Fann full mikið fyrir lærunum og efri hluta eftir lyftingarnar í gærkvöldi en það merkir bara að ég var ekki að eyða tímanum í vitleysu í salnum.  Tókum fljótt nokkuð vel á því og alveg ótrúlegt hvað er stutt til Keflavíkur á reiðhjóli.  Fyrir ekki löngu síðan hefði ég bara sagt “yeah right” ef einhver hefði nefnt það að hjóla þangað.

Horfðum á ljómandi skemmtilega sprettþraut hjá 3N, Traust fljúga í gólfið, og Torben vinna enn einn sprettinn og fórum síðan bara aftur til baka.  Dísa lasin og lét sækja sig en við Oddur fengum félagsskap af Gísla ritara, Trausta, Corinnu og Klemens í bæinn.  Keyrðum þetta sæmilega þétt og í stað þess að stoppa og hinkra eftir hægari hjólamönnum fór ég í öll hringtorg og hjólaði til baka og “sótti”.  Þannig hélt ég fullri keyrslu alla leiðina en stoppaði svo með hópnum þegar Oddur sprengdi.  Oddur komst að því að hann þarf aðeins að æfa dekkjaskiptingar og ég þarf þess svo sem líka.  Grátlegt að tapa þeim mínútum sem allar æfingarnar hafa skilað sér í dekkjaskiptum.

Fjórir tímar búnir þegar við komum í bæinn og fannst mér ómögulegt að láta þar við sitja og lengdi um einn Reykjavíkurhring.  Farið að blása nokkuð og ég orðinn þreyttur í lærum þegar ég hitta Helga.  Hjóluðum saman upp í Nauthólsvík þar sem ég ákvað að láta gott heita.  Hann í Tapering og vildi klára sína tvo tíma hélt áfram en ég dreif mig í bakarí og verðlaunaði mig fyrir gott dagsverk.  Mér fannst ómögulegt að klára mig það mikið að ég yrði alveg hundlélegur í hlaupinu á morgun.  Maður má ekki gleyma því að Þríþraut er ein íþrótt en ekki þrjár og verður því að haga æfingum eftir því.

Enn einn áfanginn

Posted: 24 August, 2011 in Æfingarnar, Keppnir

Hef verið í baráttunni við að komast undir 40 mín á 10 km í nokkurn tíma.  Í sumar gekk það loksins í Valshlaupinu og þá í góðum plús, 39:06.  Síðan hef ég ekki hlaupið 10 nema í Hveragerði en þá í brekkum og utanvegar og tel það ekki með.  Jæja núna í Reykjavíkurmaraþoninu fór ég í hálft og fór fyrstu 10 á undir 40 og það sem meira er, ég hélt þeim hraða allt hlaupið.  Langaði að fara á undir 1:25 en fór á 1:23:48.  Munurinn er bara mínúta en ég er urrandi sáttur.  Grrr!

Var ákveðinn í því að vera flottur í hlaupinu, flottur þ.e. vera ekki alveg eins og ég væri að skíta í mig af erfiði.  Hef reynt að temja mér að hlaupa uppréttur, léttur og brosandi og það gekk núna sem undanfarin hlaup.  Ég hleyp hraðar, mér líður betur og finnst miklu skemmtilegra að hlaupa svoleiðis.  Þegar áhorfendur kalla, heilsa ég og er bara almennt í góðum fíling.  Fór í nýju Brooks Racer-unum, með nýju geimveru gleraugun og með gel í hárinu.  Djöfull var gaman.  Gusaðist af stað með fremstu mönnum enda ákveðinn í að láta ekki troðning skemma fyrir mér.  Við Viðar Bragi hlupum saman talsverðan spotta en strax á Suðurgötunni fannst mér hann ætla að taka full vel á’ðí.  Spurði hann hvort við værum ekki soldið hratt en hann leit bara á mig eins og ég væri geimvera og sló ekkert af.  Eftir á að hyggja hefur hann kannski haldið að ég væri geimvera með nýju gleraugun.  Hugsaði sem svo að fyrst hann væri í þessum gír væri réttast fyrir mig að halda mig þar líka.  Hljóp allt hlaupið eftir Garminum enda svo sem ekkert viss um að ég gæti farið mikið hraðar en Pace 4.  Pillaði upp eitthvað af mannskap á leiðinni og lengi hélt ég að mundi ekki ná konunum tveimur fyrir framan mig.  Það er viss áfangi þegar maður klárar allar konur.

Var með tvo gelbrúsa með mér sem ég hélt á.  Það var ekki gáfulegt.  Fann að ég spenntist allur við að halda á þeim.  Losaði mig við annan hjá Seðlabankanum og það var strax skárra.  Ótrúlegt hvað smá truflun getur haft mikil áhrif.  Brekkan við vöruhótelið tók hressilega í og hugsaði ég að nú væri þetta farið hjá mér en það bjargaðist.  Náði fremstu konunni í Borgartúninu eftir að gefa slatta í þegar ég sá hana.  Hélt sama tempóinu þaðan í frá.  Var orðinn þreyttur og fannst þetta soldið erfitt en það er bara til að hafa gaman af.  Notaði einn og hálfan brúsa af geli og fékk mér Powerade á öllum drykkjarstöðvum.  Sullaði framan í mig á annarri stöðinni, fékk í auga og var allur ómögulegur.  Var eitthvað að reyna að þrífa gleraugun en gekk illa.  Endaði bara með að sleikja putta og þurrka þannig af þeim.  Fékk mér súkkulaðibita við Klepp en fannst hann harður og ómögulegur allur og hrækti honum bara.

Hef æft vel undanfarna daga.  Mjög kraftmikill og fínn.  Hver æfingin eftir aðra þar sem ég hef bókstaflega vaðið áfram á hjólinu og hlaupið eins og vindurinn.  Lærin hafa orgað af hamingju en svo hafa þau fengið vel af kolvetnum og proteinum og þá er allt gott.  Hef verið mjög góður í mataræðinu og fyrir vikið vantar aldrei kraft.

Tók nokkrar fínar í salnum.  Flatur bekkur gengur síður og því hef ég verið í hallandi bekk.  Hef náð að þyngja á næstum öllu og fjölga endurtekningum á sama tíma.  Það er ekki alveg í takt við það sem prógrammið segir en ég get þyngt á sama tíma og ég fjölga repsum þá geri ég það að sjálfsögðu.

Enn batnar sundið.  Ég er að sjálfsögðu ekki orðinn neinn sundmaður og á langt í það en ég batna í hvert skipti sem ég fer í laugina.  Renn betur, teygi mig lengra og velt betur.  Allt í áttina en axlirnar eru enn vandamálið.  Fékk sama verk og þegar öxlin fraus um daginn.  Hringdi beint í Sólveigu sjúkraþjálfara og fékk tíma.  Hún segir að það sé hæpið að öxlin frjósi aftur og það eina fyrir mig sé að æfa bara og æfa.  Humm eins og ég geri lítið af því?  Hvað um það ég get synt 2000 metra á sæmilegum hraða en þá koma verkirnir.

Fór til Ólafar Sæmundsdóttir nuddara í dag.  Vignir mælti með henni og ákvað ég að prófa svona djúpvefja/íþróttanudd.  Kálfarnir alveg gler og hún skrattaðist með olnbogum á mér..Var oft ansi vont en ég reyndi að taka það bara sem áskorun að vera nógu fljótur að ná slökun og losna þannig við sársaukann.  Það gekk ansi misvel en var samt gaman.  Núna sit ég með auma kálfa og móral yfir því að hafa ekki farið í Tempo hlaupið í dag.  Verð í staðinn að vakna eldsnemma og hlaupa í fyrramálið.

Jæja nokkrar myndir úr RM2011. Ég auðvitað í aðalhlutverki en fann líka flottar myndir af Odd og Pétri Helga.  Það sést á þessum myndum hvað þetta er ljómandi skemmtilegt sport.

This slideshow requires JavaScript.

Heimsmeistarafílingur á þessu

Posted: 19 August, 2011 in Æfingarnar

Aldeilis verið fjörið undanfarið.  Sunnudagsæfingarnar eru orðnar keppnis og eftir að við fengum Karenu Axels með okkur var farið að svíða í.  Brenndum sunnudag austur á Laugarvatn í Tan veislu sumarsins.  Allir komu huggulegri til baka og var þó varla á bætandi.  Nú helgina eftir (síðasta helgi) fórum við svo á Þingvelli og svo Nesjavellina heim.  Vorum bara fjögur, ég, Vignir, Ásdís og Karen.  Jökulsárhlaup og djammnótt sat eitthvað í Ásdísi og gengu brekkuskrímslin hægt hjá henni.  Í stað þess að bíða uppi fannst Karenu alveg rakið að við hjóluðum bara niður fyrir Ásdísi og þannig fengju allir svipaðan skammt úr æfingunni.  Ég hélt hún væri að grínast!  Nei, nei alveg ljómandi og ekki bara fyrsta brekkan heldur allar brekkurnar á leiðinni og ef það var jafnslétta þá bara ruslaði hún upp hól til að hjóla yfir.  Mikið djöfull var þetta samt rosalega gaman og þegar ég kláraði síðustu brekkuna í annað sinn leið mér bara alveg frábærlega.

Ákváðum að hittast seint eða klukkan hálft tíu daginn eftir og taka langa hlaupið.  Vignir var ekki til í að splæsa heilu hlaupi á bilaða hásin þannig að þetta var bara ég og íslandsmeistarar kvenna.  Ásdís hægði eftir ekki langt hlaup þar sem kálfinn var að hrekkja hana.  Við settum vel í og fórum tvo tímana með korters hraðabreytingum.  Það átti að vera frá hægu upp í nokkuð hratt en var bara alveg ljómandi hratt og svo enn hraðar.  Ferlega gaman og skemmtilegt að breyta svona til með æfingar.

Ég veit ekki hvað er að breytast en þriðjudagsæfingarnar sem eru núna orðnar einn og hálfur hlaup og þrír hjól eru bara ekkert langar.  Þetta voru langar helgaræfingar í fyrra en núna er þetta bara svona svona.  Eitthvað Hollendingsgerpi gerði góða tilraun til að keyra mig niður á Krýsuvíkurveginum, svona til að sýna mér að ég hafi ekkert með það að gera að hjóla á veginum.  Ég kærði þetta til lögreglunnar og sagði sá sem ég talaði við að þeir tækju svona alvarlega.  Hvet ég þá þríþrautar og hjólagarpa sem lenda í svona rugli að láta lögreglu vita, þetta er fært til bókar og menn fá símtal frá lögreglunni.  Nú svo er auðvitað hægt að kenna mönnum lexíu með vænum skammti af ofbeldi en það er kannski ekki sniðugt að launa ofbeldi með ofbeldi eða hvað?  Erum við þá ekki orðin of lík nágrönnum okkar í vestri eða guðs útvöldu þjóð?  Segi svona.

Er alveg hættur að drekka kók og borða nammi.  Ég held, svei mér þá, að ég finni nokkurn mun á mér.  Ég er svo kraftmikill þessa dagana að ég læt stundum eins og hver æfing sé mín síðasta.  Þriðjudagurinn var ansi hvass og þá er nú hífandi á Krýsuvíkurpylsunni.  Ég setti bara í G og þrumaði upp í vindinn.  Hélt flottu farti og var mjög fljótur að jafna mig á eftir.  Fór svo og hljóp áðan og var að average-a á pace 4 án þess að blása úr nös.  Þetta hlýtur að vera mataræðið.  Kannski fer ég eitthvað fyrr að sofa og næ að jafna mig svona betur á því.  Veit það ekki en þetta er mjög ánægjulegt.

Reykjavíkurmaraþon á laugardaginn.  Ég ætla í hálft og ætla að bæta PB frá því í snjóþoninu í vor.  PB er 1:27:30 en ég stefni undir 1:25.  Verð ansi hress með mig ef það gengur.

Sundið er eitthvað að gera sig hjá mér.  Hef tekið nokkrar góðar æfingar þar sem ég hef bara farið og synt.  Hefur bara gengið fínt en eftir 2 plús er ég farinn að vita vel af öxlum.  Verð bara að reyna að bæta átakið þó svo að það sé kannski ekki optimal þá er það þó betra en ekkert.  Ég er allavega nokkuð bjartsýnn á mig í sundinu eins og er.