Fyrsta opinbera þrautin í ár.

Posted: 16 May, 2011 in Uncategorized

Kópavogsþríþraut númer tvö hjá mér.  Sú fyrsta var í fyrra.  Þá þekkti ég engan, vissi ekkert um þríþraut en hafði farið á námskeið skriðsundi.  Sú keppni varð frekar endasleppt þar sem ég lagði ekki í að mæta.  Ég hafði hjólað nokkur skipti á Ítalanum á Trainer en ekkert úti, var í la la hlaupaformi og gat ekkert í sundi.  Nú ég harkaði af mér fyrir næstu þraut og tók þátt í ólympiskri þríþraut þar sem mér gekk ömurlega, skrokkurinn allur í mínus og annað eftir því.

Merkilega brattur baraÞetta var ágætis áminning um að taka sér tak þar sem ég var búinn að skrá mig í Köben þarna.  Fór að æfa með Vigni og kó um helgar og reyndi að gera eitthvað af viti virka daga.  Fór að fylgja plani sem Vignir hafði fundið á Netinu, kíkti á sjúkraþjálfara sem kenndi mér að liðka mig og styrkja bak og rass og eftir ekki mjög langan tíma var ég kominn á flug.  Frábært sumar varð að enn betra hausti í Kaupmannahöfn þar sem ég fór ótrúlega fyrirhafnarlaust í gegnum heilan Járnkarl og í gær endaði ég í fjórða sæti í mínum aldursflokki.  Fjórða sæti þrátt fyrir að þurfa að láta mig renna niður alla síðustu brekkuna og inn á skiptisvæði þar sem keðjan datt af hjá mér.  Daginn áður hafði ég hlaupið rúmlega hálft maraþon á malarstígum með hundinn í bandi!  Það er ekki hægt annað en að vera ánægður með þetta.

Ég er hæst ánægður að “tapa” fyrir mönnum eins og Steini og Gylfa, Guðmund þekki ég ekki.

Mér gengur ekki alveg nógu vel með öxlina.  Er endalaust með verki í henni og nú bætist viðbeinið við.  Sólveig sjúkra segir að ég megi alveg búast við að þurfa að láta taka af því, það sé ekki óalgengt eftir aðgerð eins og mína.  Ég er nú ekki alveg til í meira svona stuð.  Næst verða tvö rifbein tekin og ég verð eins og Cher í laginu.

Amen

Leave a comment